A.T.H Síðan er enn í vinnslu og því virka ekki allir linkar!!!!

 

 

28.06.2011

 

Jæja nú eru allar myndirnar komnar inn á facebook, innan tíðar munu svo birtast fleiri myndir hér á síðunni...

 

Verið nú dugleg að tagga krakkar mínir........

 

-Dötti

 

19.5.2011

 

Vinnsla myndanna frá Ranarokki 2011 er í fullum gangi og ættu myndirnar að detta inn á síðuna á næstu dögum. Einnig verða valdar myndir settar inn á facebook síðuna okkar.

 

-Dötti

 

 

16.4.2011

 

Takk fyrir frábæra stund allir saman, hlökkum til þess að sjá ykkur á næsta ári.

 

kv.....stjórn Ranarokks

 

 

 

13.4.2011

 

Enn vantar fólk í hin ýmsu störf, ýmiss fríðindi í boði fyrir þá sem nenna að hjálpa til, sendið mail á info@ranarokk.com eða bjallið í Dötta í síma 770-0025 ef þið hafið áhuga.

Ath , viðkomandi verður að vera orðin 18 ára......

 

 

13.4.2011

 

 

 

 

Forsala á seinni tónleikana er byrjuð í apótekinu í Þorlákshöfn.

 

miðaverð í forsölu..............1000kr

miðaverð við hurð..............1500kr

 

Örlítil breyting er á dagskránni, endilega kíkið inn á "Ranarokk 2011" linkinn fyrir ofan til þess að sjá hvað er að gerast...

 

    Hljómsveitin "Trust the lies" var að bætast í hóp hljómsveitanna sem munu spila á Ranarokki í ár

 

 

 

5.4.2011

 

Fleiri bönd eru komin á seinni tónleikana, þetta stefnir allt í hið ágætasta partý. Allt að smella saman. Endanlegt line-up á báðum tónleikunum verður auglýst um næstu helgi...

klikkaðu á "Ranarokk 2011" linkinn og skoðaðu böndin sem munu spila í ár, við erum síðan með ýmisskonar fróðleik um böndin, video og tóndæmi hjá mörgum,  ef þú klikkar á nöfnin á böndunum þá ferðu inná upplýsingasíðu viðkomandi hljómsveitar..

-Dötti

 

 

 

31.3.2011

 

Þetta er allt farið að taka á sig góða mynd og það er ekki að merkja annað en að það sé almennur áhugi fyrir Ranarokkinu í ár. Nú er endanlegt line-up komið á tónleikana sem byrja kl 18:00 en enn eiga einhver bönd eftir að bætast við á seinni tónleikana. Mig langar enn og aftur að minna á facebook leikinn. Vertu vinur Ranarokks á facebook og þá gætiru unnið miða fyrir 2 á Ranarokk 2011, hvort eð er fyrri eða seinni tónleikana. (18+ á seinni).

 

Miðaverðið hefur verið ákveðið en það er þannig.

 

18:00 - 22:00 .......................... 1.000 kr

22:00 - 03:00 .......................... 1.500 kr

 

Barinn opnar eftir að húsið hefur verið rýmt um 22:00, þá tekur gildi 18 ára aldurstakmarkið!!!

 

Það verða til sölu hamborgarar, samlokur og fleira gómsætt á hagstæðu verði allt frá opnun til lokunnar ,en einnig verða tilboð á barnum frá 22:00 til lokunar.

 

vertu vinur okkar á facebook hér fyrir neðan:

 

og síðan viljum við biðja þig um að bjóða sem flestum á þennan facebook viðburð

 

 

 

 

 

 

24.3.2011

 

Öll dagskrá fyrri tónleikana er komin á síðuna. Þar kennir ýmissa misþroskaðra randagrasa og er flóran nokkuð góð þannig að allir ættu að getað fundið eitthvað við sitt hæfi.

Við höfum boðið félagsmiðstöðum af suðurlandi að vera með okkur á þessari skemmtilegu hátíð og bíðum svara frá þeim.

 

 

Miðaverð verður auglýst síðar en gera má ráð fyrir um 1000kr á fyrri tónleikana

 

 

Við erum byrjuð að setja inn böndin sem spila á seinni tónleikunum, en fleiri bætast við á næstu dögum.

 

-Dötti

 

 

 

20.3.2011

 

Við erum byrjuð að tilkynna böndin sem munu spila á Ranarokki í ár.

Þið getið fylgst með því með að klikka á  "Ranarokk 2011" linkinn hér fyrir ofan...

-Dötti

 

 

 

16.3.2011

 

Jæja nú er síðan að skríða saman og bara allt að gerast, erum enn að bíða eftir staðfestingu frá nokkrum böndum en annars er komin nokkuð góð mynd á þetta. Á næstu dögum munum við svo byrja að tilkynna hvaða bönd munu koma til með að spila í ár. Eins er facebook leikur að fara í gang, hann er ekki flókinn, einfaldlega addaðu okkur á facebook og þú gætir unnið miða fyrir tvo á herlegheitin...

-Dötti

 

 

 

Hvenær »

 

15.apríl

 

Fyrri tónleikar:

18:00 - 22:00

 

Seinni tónleikar:

22:00 - 02:00

 

Hvar »

 

Ráðhúsið í Þorlákshöfn.

 Í sal Ráðhúskaffis.

Hafnarbergi 1 - 815 Þorlákshöfn 

 

Fyrir Hverja »

 

 Fyrri tónleikar:

 

fólk fætt 1997 og fyrr

 

Seinni tónleikar:

 

18. ára aldurstakmark